Snilld

Lokaorðin verða ódauðleg... "hvetur ekki til þess því að það fer illa með húsið" kældhæðnin fleytir manni oft langt
mbl.is Biður nágranna afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísland! hvar er þín Aung San Suu Kyi?

Sem hefur kjark til að framkvæma, ekki bara tala.
mbl.is Suu Kyi sögð alvarlega veik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skjaldborg

Aðgerðarpakki í 15 liðum - Skjaldborg - Velferðavakt - vernda heimilin... allt er þetta að virka mjög vel samkvæmt nýjustu upplýsingum stjórnvalda.  Getið þið sem skuldið og erum að fara í nauðungarsölu ekki skilið það - þetta er allt að virka.  Hættið að fara í nauðungarsölu, þið eyðileggið allt...
mbl.is Sex eignir á framhaldsuppboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki nema 800 millj.

Mér finnst eðlilegt að reka stjórnendur OR fyrir að geta ekki greitt út hærri arðgreiðslur.  Það er skömm af þessu - hvers eiga hluthafar að gjalda?  Það er að koma sumar og aðgerðapakki Jóhönnu alveg að fara að virka og nánast komið góðæri á ný.  Nú getum við farið að græða á kvöldin og grilla á daginn.... 
mbl.is OR greiðir 800 milljónir kr. í arð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hótanir ráðherra

Þetta er ótrúleg ósvífni ráðherra að hóta lántakendum á svona penan hátt .  En þetta kemur ekki á óvart.  Gylfi hefur brugðist svona við öllum tillögum sem snúast um annað en að hækka skatta og lækka laun.  Ríkisstjórnin ætlar sér að rétta við Íslenskt efnahagskerfi á sliguðum bökum vinnandi fólks. 
mbl.is Flestir geta staðið í skilum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að sjálsögðu borgum við þetta allt...

Stjórnin (hvort sem er G, VG,S eða B) þarf að styrkja fjármálastofnanir og koma þeim aftur ígang og eina örugga leiðin er að láta okkur borga fyrir það - hvað annað.  Annars geta fjármálastofnanirnar ekki haldið áfram að framleiða peninga sem þeir lána okkur svo með góðum vöxtum.  Þau lán getum við svo notað til að borga skuldir okkar við fjármálafyrirtækin svo að þau styrkist og dafni

Þannig erum við að borgað skuldir fjármálafyrirtækjanna og okkar eigin skuldir í leiðinni - tvær flugur í einu höggi - málið leyst.  

Og til þess að við förum nú ekki að eyða um efni fram og valda annarri fjármálakreppu með allri þessari neyslu, þá lækka þeir launin okkar   

http://www.dv.is/frettir/2009/4/14/skattahaekkanir-og-launalaekkanir/ 


Viðbrögð við hamförum

Fjármálahrun heillar þjóðar, atvinnuleysi og fjöldagjaldþrot eru sannarlega hamfarir þó að ekki sé náttúran þar að verki.  Mér finnst Rauði Krossinn þarna sinna skildum sínum og fylgja þeim sáttmálum sem hann er byggður á - ég tek ofan fyrir þeim fjölda sjálfboðaliða (og einnig launaðra starfsmanna) sem ætla að leggja út í þessa vinnu.

Ekki reikna með að hjálparstöðvarnar fyllist á fyrstu dögunum, en smátt og smátt mun fólk Þurfa á þessu að halda... mörg okkar hafa dregið sig inní skel afneitunar, ótta og kvíða á síðustu vikum og þurfum einhvern til að vera til staðar þegar við ákveðum að opna skelina og koma út.   

 


mbl.is Miðstöð fyrir fólk í erfiðleikum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Snilld - Bara eitt vandamál

Hvar í veröldinni á ég að ná mér í appelsínugult efni... verð víst að fara að leita...
mbl.is Appelsínugul og friðelskandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alger fásinna

Ég sem hef verið virkur þátttakandi í undanförnum mótmælum, mótmæli hér með harðlega þessari aðför að vinnandi mönnum. (geri ekki annað en að mótmæla nú orðið :))  Ef einhverjir aðilar sem kenna sig við mótmælendur ætla að sitja um einstaka lögreglumenn og fjölskyldur þeirra þá mæti ég, ásamt mótmælafélögum mínum, þessum sömu lögreglumönnum til varnar.  Við látum þetta ekki viðgangast, þetta er ekki hótun heldur staðreynd...

Ég fór niður á austurvöll í gær til að sækja son minn sem hafði fengið sinn skammt af piparúða yfir sig þar sem hann stóð og ögraði lögreglumönnum.  Hann var að mótmæla á þess að vita með vissu hver málstaðurinn er - hann veit það núna.  Fólk safnast saman og mótmælir þar sem staðan er grafalvarleg - þetta er ekki leikur - þetta er ekki gaman - það er búið að neyða okkur til mótmæla og því halda áfram.  Komið ykkar fólki í skilning um það. 

 


mbl.is Nafnbirtingin grafalvarlegt mál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um Seðlabankann og Evrur

Það læðist að mér sá illi grunur að ríkjandi stjórnvöld hafi ennþá töglin og haldinnar í að móta skoðanir fólks - er mögulegt að verið sé slá ryki í augu fólks með yfirlýsingum um gott gengi krónunnar, lækkun skulda og hugsanlega minnkandi verðbólgu.  Ég vildi óska að slíkt myndi raunverulega gerst en óttast samt að hér sem um ljótan leik að ræða - að hér sé að ferðinni risaeðla sem er að taka sýn síðustu kröftugu andartök áður en hún líður út af.

Ég kasta hér fram smá vangaveltu í þeirri von að mér fróðari bloggarar geti uppfrætt mig ef ég er að fara með algera vitleysu...   Ég þarf að einfalda hlutina fyrir mér til að skilja allan þennan frumskóg hugtaka sem fjármálaspekingarnir kasta nú hægri og vinstri. 

Nú segir SÍ að krónan hafi styrkst svo og svo mikið gagnvart erlendum gjaldmiðlum, þ.e. nú er ein Evra skráð á 144 IKR hjá SÍ en seðlabanki Evrópu skráir hana á 290 IKR.  Þarna er 146 IKR munur.  Ef ég sem verslunareigandi fer í seðlabankann og fæ gjaldeyri Evrur til að leysa út vörur í Evrópu ætti þetta að vera mér mjög hagstætt.  Eða hvað? 

SÍ þarf væntanlega að kaupa þessar evrur í útlöndum og nokkuð víst að hann fær ekki evruna á því gengi sem hann hefur sett upp, þ.e. á 144 per evru.

Þíðir þetta að SÍ eru svona góðir að þeir taka á sig mismuninn.  Hugsanlega er skýringin sú að IMF lánið sé notað, hugsanlega sóað, til að greiða þennan mismun. 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband